|
|
 |
May 1, 2006
Ég geymi 10 epli í mínum "anus" og hef pláss fyrir 10 í viðbót!!!
JæjjaJæjjaJæjja..... ég skal þá láta það eftir ykkur að skrifa einn pistil hérna núna!
Margt búið að ganga á hjá mér síðan síðast. So where do I start?! Hvað með daginn í dag!!! Í dag er fyrsti maí.... ennþá allavegan, klukkan 15 í miðnætti og ég er ekki búinn að sjá dagsbirtu því að ég var fastur, hlekkjaður og alls ekkert sáttur uppí vinnu eins og vanalega! En mín mótmæli fóru samt framm á mjög friðsamlegan hátt, þar sem ég ákvað að það væri góð hugmynd til að öðlast betri kjör og kaup, að vinna bara svona til tilbreytingar. Fyrst að mótmælagöngur bera aldrei neinn árangur með sér, þá hví ekki prufa akkúratt andstæðuna við hvað allir halda að þú munir gera til að mótmæla einhverju?!? Það voru 3 hlutir sem björguðu mér frá krónísku dauðsfalli úr leiðindum í dag, og efst á listanum er hann Kári minn! Ímyndið ykkur lagið Pósturinn Páll. En ímyndið ykkur síðan hvernig lagið væri ef að Páll..... væri síðann ekkert póstberi, og að Njáll væri andskotann ekki köttur! Hvernig væri lagið þá? Það yrði eftirfarandi:
Páll Páll Páll og Njáll tralallallallaaaaa&%$#
Ætla að þakka Kára fyrir að hafa deilt þessu með mér í dag. Hitt var svo að í eldhúsinu í vinnunni er ískápur af dýrustu gerð.... Ískápur af gerðinni "Zanussi". Rosa fancy að sjálfsögðu. Ég hvet eindregið alla sem eiga einhver eldhústæki af þessari gerð að fá svart límband, og teipa yfir fyrsta stafinn í orðinu "Zanussi" og tvo síðustu.
Z A N U S S I
Hið þriðja sem ég gerði var einfaldlegan að rífa A4blög niður í litla strimla og síðan strimlana niðrí einhversskonar atóm af blaði að vera, þangað til að ég þurfti að hnerra og þá skaust allt útum allt og tína það síðan upp og byrja á nýju blaði 
En annars þá var þetta rosalega gáfulegur dagur...... Yeahrigth and As If!!!
Posted at 04:47 pm by berulfur
Permalink
Mar 1, 2006
and now I'm just being brainless
Ég hef alltaf álitið það blessun hvað ég er með skrítinn hugsunarhátt. Ég styð þá staðhæfingu með þeitti röksemmd einni saman að ég get auðveldlega hlegið mig máttlausann yfir einhverju sem engum öðrum myndi detta í hug að væri fyndið. Enough said.
Stundum er þetta þó smá vandræðalegt eins og t.d. þegar ég heyrði einhverja stelpu segja á kaffihúsi:
"Ég ætla að fá sjö smokka takk fyrir"
og svo áður enn ég næ að átta mig þá kemur vinkona hennar á afgreiðsluborðið....
"Já ég ætla líka að fá sjö smokka takk fyrir"
Og ég sit þarna og hugsa....... SLUTS!!!! Hvað haldiði að þetta sé.... apótekbarinn?!?!? Þetta er rólegt kaffihús for christ sake! Hvað ætlið þið að ríða mörgum gaurum núna? bara SJÖ? eða eigið þið eftir að koma aftur eftir klukkutíma og kaupa meira?!
En svo komst þessi eina heilasellamín með loksins til skila...... Þær voru einfaldlegan að biðja um Swiss Mokka!!!!
Posted at 11:08 am by berulfur
Permalink
Feb 21, 2006
Komst að því um daginn þar sem ég var labbandi niður laugarveginn, til hvers öll þessi járn og steyputyppi eru þarna langsmeð götunni!!!! Ég fylgdist með alltof feitum manni sem hefur verið hátt uppí 300kg vera að labba á milli þessara gaura og hvíla sig í svona mínótu á hverjum og einum þangað til hann lagði af stað í næsta. Hver segjir svo að bæjaryfirvöld koma ekki til móts við fatlaða?!? Laugarvegurinn er ekkert nema eitt stórt handrið fyrir FEITT fólk sem er úti að "windowshoppa"..... Great 
Posted at 10:02 am by berulfur
Permalink
Feb 18, 2006
Það er búið að þrífa upp viðbjóðinn núna svo ég eyði ekki fleiri orðum í það.....
En snúum okkur að öðru. Og það annað er.......
Hvernig er þetta hægt!!! Ég gleymi því aldrei þegar ég var yngri og óspjallaðri hvað mér fannst fólk vera alltaf að ýkja. Einhver t.d. að tala um að hann er búinn að vera fullur í fleiri fleiri mánuði.... Yeah right! Það er nefnilegan ekkert hægt! Ég er að fatta það núna að þessi staðhæfing gildir ennþá hjá mér í dag. Ég bara legg annann skilning í hana. Það er að segja..... ég er búinn að vera drukkinn allt árið 2006 "so far" og þá meina ég það bókstaflegan upp á hvern dag. Mér líður ömurlega í sálinni og líkaminn minn er farinn að hallast að svipuðum fíling, svo það eina sem heldur mér lifandi þessa daganna er einfaldlegan að fá mér bjór eins fljótt og hægt er, og svo annann og eitthvað annað og síðan gin og kannski aftur bjór eða eitthvað annað hugsanlega mögulega kannski. Þessi lifnaðarháttur er náttúrulegan ekki hægt! Ég er þar að leiðandi ekki hægt. Ég hitti líka gaur um daginn sem á 5 nöfn og hálfbróðir hans á 13!! það er að sjálfsögðu ekkert hægt heldur. Hann man sennilegast ekkert hvað hann heitir, hvað er það ömurlegt, ég er í nógu miklum erfileikum með mín þrjú, en þrettán?!? Uppgötvaði geðveikan tónlistarsnilling hann Hermigervil Thoraroddsen. Hann er alls ekki hægt. Hann er alltof góður. Það getur enginn gert svona. "En just for the fun of it" kíkjið á www.hermigervill.is og downloadið gömlu plötunni hans "Lausnin" og kaupið ykkur síðan Sleepwork. Þetta er það sem þú færð út ef að DJ Shadow myndi lenda í rosa sexcrazed partíi með The Wiseguys og 9 mánuðu eftir myndi hann geta barn. Þetta vitum við öll að er bara rugl, þetta myndi aldrei eiga séns á að gerast jafnvel í jafn geðsjúkum, dauðvona og "all in all fuckedupp" heimi sem við gerjumst í núna í dag. Sem ég bendi aftur á að þessvegna er þetta ekkert hægt! En samt er þetta einhvernmeginn að gerast og það er engin rökfræði á bak við þetta allt sem er svo ekkert hægt og það er bara skemmtilegri pæling heldur en ohhh.... ég vildi að þetta væri hægt. Ef að einhver skilur þessar rugl pælingar hjá mér þá ætla ég að ráðleggja honum segja engum lifandi manni frá því.
Posted at 01:42 pm by berulfur
Permalink
Feb 12, 2006
...... Og þess vegna ætla ég að láta mig hafa þetta
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Gróðurskálinn Sólskógar - my first ever real job
- Fosshótel Valaskjálf - Skemmtilegasta tímabil ævi minnar
- Þrívíðar Graffískur Hönnuður á Teiknistofunni Onno - I WANT A RAISE!!!
- Yfirumsjónamaður plöntunar á Stóra Sandfelli - Slatti af pening og náttúru
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Matrix
- Fight Club
- The Cave - þar sem að ég get hvort eðer eytt tímanum í að stara upp í loftið
- Hitchikers Guide to the Galaxy
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Hallormsstaður - Vallahrepp
- Stóra Sandfell 1 - Skriðdal
- Hammerstadsgate 21c - Oslo, Majurstue
- Lokastígur 19 - 101 Reykjavík
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Seinfeld
- Family Guy
- Futurama
- Simpsons
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Sarajevo (Bosnia)
- Köben (Danmörk)
- London ()
- Malmö (Svíþjóð)
Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):
- www.spinquad.com
- www.3dtotal.com
- www.flay.com
- www.google.com
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
- Kjúklingur
- Kjöt - allt nema manna
- Góðar Súpur
- Pastaréttir
Fjórar bækur sem ég les oft:
- Flanimals
- Great lies to tell small children
- T. Pratchet - Allt
- Sandman (graphic novels)
Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:
- Outer space
- í Danmörku
- Oslo bestur borg í heimi
- Á sama helvítis landfleka og einhver góður kvenmaður
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
- Klukka ekki neinn þar sem ég er fífl og á ekki nógu marga blogg vini
Thats all folks
Posted at 12:08 pm by berulfur
Permalink
Feb 10, 2006
JA HÉRNA OG HÉR! Akkuratt þegar ég hélt að kúk og piss brandararnir færu að fara úr tísku, þá gerist það ógeðslegasta. Eftir mikinn óhug og stanslausri skemmtun yfir kúknum Manna, þá var maður eiginlega farinn að líta á hann sem einhversskonar persónu. Já hann Manni kallinn, alltaf að hanga úti eitthvað, borðar voða lítið og er örugglega kalt, kannski maður ætti að fara út og gefa honum að borða og breiða yfir hann? Í dag kom í ljós að áhyggjurnar voru fyrir ekkert. Haldiði að kjéeellinn sé ekki bara kominn með kærustu!!! Hún er svoldið svona á litinn og er mun meiri um sig heldur en hinn Manni og einnig lýtur út fyrir að það sé mun meira af henni þegar á heildina er litið. Hún er minna feiminn en Manni því hún heldur sig til ekki nema bara 1,5 meter frá hurðinni og svo er hún frekar fersk. Svo er hún töff og drekkur greinilega bjór (LITE bjór, fyrir þá sem vildu vita).
PEOPLE..........! ..... ÞETTA ER ÓGEÐSLEGT!!! Er það virkilega komið til þess... að portið á skúlagötunni er orðið svona "the place to be" ("at leat if you're taking a big dump"). Á þessi geðsjúklingur eftir að segja öllum vinum sínum frá nýja staðnum sínum og eftir helgi þá verður þetta eins og eitthvað helvítis "minefield", eða vill hann bara halda þessum stað fyrir sjálfann sig því að þetta er hans staður og honum líkar næðið!?!?
Annað skemmtilegt sem kom uppá í dag var að ég fór til læknis. Reyndar bara rétt áðann og var þannig séð að koma þaðann. Ég hefði verið kominn heim svona rétt rúmlega HÁLFTÍMA fyrr, ef að það væri ekki svona heimsk fólk sem er líka gamalt og finnst gamann að stilla sér upp í röð inní andyrinu á heilsugæslustöðinni því að það er að bíða eftir að einnhver opni hurðina og segjir: "HEY!! Fáið ykkur fullt fullt að hrútaeistum því það er svo helvítið mikið komið ÞORRABLÓT!!!" Við erum að tala um það að það var byrjað að ná í stóla uppá herbegin sín til þess að geta teppt alla umferð inná heilsugæsluna eins mikið og möguleiki var á! Við erum að tala um það að þetta var jafn troðið og inná Circus eða Kaffibarnum, á barnum á góðu kvöldi (nema hvað að það var enginn að dansa eða reyna við þig neitt sérstaklega). Ég hafði það bara ekki í mér að brjóta mér leið í gegnum þvögunna út af þeirri lífreglu hjá mér "að mér er illa við að meiða gamalt fólk". Hvað átti ég að gera, ýta olbogunum á mér útum allt og vonast til þess að allir eldri borgarar myndu sjá vit í því að færa sig frá (samt í "superslowmo'") áður en ég gæfi þeim einn í síðunna?
Neibb, ég tróð mér á endanum einhvernmeginn undir stigann og gerðist akróbati í smástund til þess að drulla mér út áður enn að apótekið lokar. Í dag verð ég að viðurkenna að já..... hmmm... jú, mér er eiginlega svoldið ílla við gamalt fólk. Blessunarlega hlýt ég að vaxa uppúr þessu.
Posted at 11:26 am by berulfur
Permalink
Feb 8, 2006
á þriðjudaginn þarsíðastliðna vakna ég úrillur eins og venjulega, sparka í fatahrúguna á gólfinu hjá mér og sting höndunum beint uppíloftið í þeirri von um að einhver flík endi með því að klæða sig sjálf á mig á leiðinni niður. Þetta virkar að vitaskuld aldrei. Yfirleitt fæ ég einhverja stáltölu eða belti beint í andlitið og það vekur mig aðeins. Svo giska ég á að þeir sem eru nógu heppnir til að vera að horfa útumgluggan hjá sér þegar ég labba útur húsi, sjái einhversskonar uppvakning sem virðist vera nýbúinn að uppgötva I-pod. En þennan þriðjudag var ekki allt eins og það á af sér að vera, óooonei skal ég segja ykkur!
Þegar ég labba inní portið í vinnunni blasir við mér alveg hreint ótrúleg sjón. Bíddu nú við.... hvað er þetta sem er þarna á jörðinni? Neiiii... getur ekki verið.... ha! nei... kommon..... ......... ......... er þetta mannaskítur?!?!!!!
Nei ekki bara mannaskítur, heldur mannaskítur og fallega lagt yfir hann er eitt klósettpappírsrif og búið að drepa í einni sígarettu rétt hliðin á honum. "Nice display", Það gerist ekki mikið ógeðslegra. Ég tel mig bara vera heppinn að hafa ekki stigið óvart ofan í þetta. Það er svo alveg týpiskt fyrir mig þar sem ég er hvorteðer yfirleitt nærri búinn að drepa mig 3 sinnum á leiðinni í vinnunna með því að labba beint fyrir bíla, svo að kúkur er kannski ekkert svo slæmt í samanburði.
En eflaust meira um þetta síðar..... þar sem að það er ekki ennþá búið að fjarlægja þetta og það er liðinn meira en vika.
Posted at 02:00 pm by berulfur
Permalink
Feb 1, 2006
Til að vitna óbeint í settningu úr frábærrum pistli Þórarins úr fréttablaðinu núna um daginn.
Þessi Hamstur sem drífur áfram heilabússtarfsemi mína er löngu sofnaður
Annaðhvort er hann sofnaður, hjólið brotnað eða hamsturinn hefur einfaldlega dáið úr eintómum leiðindum. Til að einfalda þetta meira... þá er ég semsagt að ýja að því að ég veit ekki neitt lengur. Hvort ég hafi einhverntíman vitað eitthvað er allt önnur og mun heimspekilegri pæling, sem við skulum ýta til hliðar í bili.
Ég tek mér reglulega til umhugsunar og reyni að meta og vega mitt eigið ástand og reyni þá að koma því í einhver orð hvernig mín andlega líðan er akkúratt þá stundina. Það er gaman að því að komast að því með eiginn rökfræði að maður veit ekki neitt. Ég meina VÁ!!! að maður geti ekki einu sinni haft vit á að ljúga að sjálfum sér, fixa nokkrar breytur í reiknisdæminu svo að maður geti allavegan fullyrt að maður hefur það ágætt eða ekkert sérstakt. Neihei! ekki að ræða það, þar sem að heilabúið mitt er sennilegast orðið óstarfhæft vegna skorts á hamstravirkni, þá hef ég ekki einu sinni lengur hugmyndaraflið til þess að ljúga að sjálfum mér.
..... og ég sem hélt að smá dropi af innri djúpsálarskoðun væri ekkert nema hollt! En hvað veit ég svossem.
Posted at 10:09 am by berulfur
Permalink
Jan 29, 2006
Ljósaperur eru tæki skrattans, allaveg hér í Valaskjálf. Ég get svarið
það, ég fó í húsasmiðjuna og eyddi 14800 kr. í ljósaperur. Það
eru hvorki meira nér minna en 100 perur af hinum ýmsu tegundum. Ég er
búinn að labba upp og niður stiga að minsta kosti 60 sinnum og það er
nú bara ekkert sma´, skrúfa alla kúpla lausa af taka biluðu peruna úr
og setja þá nýju í, þrífa kúpulinn, setja hann aftur á og labba niður
tröppurnar aftur, geri ráð fyirr því að það taki 4 mín að setja hverja
peru í... þá er það 240 mín sem e´g er búinn að eyða í að setja upp
ljósaperur, og á eftir að eyða öðrum 160 mín.
Gaman að þessu.
Kv. Kári jobba
Posted at 04:28 am by karijosefs
Permalink
Jan 26, 2006
Eistu Hnakkar og Megaz..... hvað ætli þetta hafi sameiginlegt?
Er Megas orðinn hnakki og er að fara að taka upp nýja plötu með Einari Ágústusi??
Er loksins búið að vísindalega sanna að Hnakkar hafi ekki og hafa aldrei haft og munu aldrei fá... eistu??
Var Megas að elda sér eistnahnakka??
Neibb..... sorry to disapoint, þó það hefði verið ósköp fyndið á einhvern skrítinn hátt ef eitthvað af ofantöldu væri með svo mikið sem eitt sandkorn af sannleik í sér. Nema náttúrulega þetta með Eistnalausa Hnakka, allir vita af þessari staðreynd og það er svossem hægt að færa ágætis rök fyrir því að vilja ekki kanna málið betur.
Geriði ykkur grein fyrir því að við íslendingar borðum samanlagt um 200.000 eistu á ári ?!?!? Hvað segjir það okkur? Jú ef við reiknum með allir taki jafnan þátt í eistnaátinu, þá borðar hver íslendingur um 0,67 af eista á ári, eða mjög gróflega 2/3 af eista. Ég þó að það séu ekki nema 1/3 þjóðarinnar sem actually borðar þenna viðbjóð ef svo mikið. Þá erum við komin með 2 eistu á mann á ári. Sem þýðir að ef ég á eftir að lifa..... segjum 70 ár í viðbót þá á ég eftir að borða 140 eistu áður enn ég dey ef ég ætla mér að viðhalda íslenskum hefðum. Jei! eitthvað til að hlakka til, gott að setja sér markmið. Nema að ég held að það séu kannski enn færri en 1/3 þjóðarinnar sem að taka þátt í eistnafestivalinu svokallaða, svo að við verðum að gera okkur grein fyrir því að það eru actually einhverjir gaurar þarna úti sem eru að éta kannski allt upp í 10 eistu á hverju þorrablóti!!! And that is just plain wrong people!
Það eru sögusagnir eða öllu heldur fréttir um það að það sé eitthvað mental case sem er að ónáða og rétt til sagt beinlínis hóta verslunareigendum og starfsfólki á skólavörðustíg. It's like in my friggin neighborhood!!! Maðurinn hefur sjálfsagt ekkert betra að gera og bara leiðist. En ég tek samt allt með stóhískri ró, þar sem mig grunar sterkt að þetta sé allt saman byggt á misskilningi. Ég held að þetta sé bara hann nágranni minn Megas. Fólk bara skilur hann ekki og heldur að þetta sé einhver vera, sem er að ógna sér. Vesalingurinn hefur örugglegan bara verið að benda á að öll mjólkin í kælinum væri útrunnin og já... þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það hljómar úr vörum söngfuglsins Megas.
Síðast en ekki síst, þá vil ég bægja fólki frá því að horfa nokkurntíman á sjónvarpsþáttinn SPLASH sem sýndur er á Circus (eða Sirkus, just don't remember). Þarna er á ferðinni einhver rosalegasti raunveruleikaþáttur sem hefur verið sýndur í íslensku sjónvarpi. Þetta er samt allt gert undir yfirhöfninni partýþáttur, en við vitum betur. Þarna fáum við að gæjast inní furðuveröld Hnakkans og Hnakkamellunar............
That's it, það gerist ekkert í þessum þáttum svo það er ekkert hægt að lýsa þessu betur. Þetta er samt ómsissandi fyrir mannfræðinga og félagsfræðinga þar sem að þetta er jafn real og hvað annað og jafn yfirnáttúrulega vitlaust og heimildarmynd um mannætættbálka á Svahíli. En ég vara við þessu, því að þið verðið svona 25.301 heilasellum til söknuðar eftir að horfa á þetta.
Posted at 12:39 pm by berulfur
Permalink
|